Um félagið
Vertu velkominn á vefsíðu Félags Íslenskra Námsmann í Stokkhólmi. Það
er von okkar að hér verði hægt að nálgast allar helstu upplýsingar
fyrir þá sem hafa áhuga á að sækja nám í Stokkhólmi
Í framhaldi af því að safnað var upplýsingum um námsmenn hérna á Stokkhólmssvæðinu ákváð
undirbúningsnefnd fjögurra námsmanna að stofna Félag íslenskra
námsmanna í Stokkhólmi sem er félag okkar sem erum
í námi hér til lengri eða skemmri tíma.
Tilgangur félagsins er þríþættur:
- Að auka samheldni og félagslíf íslenskra námsmanna á Stokkhólmssvæðinu og vera málsvari þeirra ef á þarf að halda.
- Að vera vettvangur allra þeirra hagnýtu upplýsinga sem verðandi námsmenn og í raun flestir sem flytja til Stokkhólms þurfa á að halda.
- Að vekja jákvæða athygli á Svíþjóð og Stokkhólmi sem valkosti í námi þegar við á.
Fyrstu skrefin í starfi félagsins var söfnun þeirra hagnýtu upplýsinga sem verðandi og núverandi
námsmenn þurfa á að halda í námi og lífi sínu hér. Þetta fólst í ritun pistla
um hin ýmsu málefni sem birtir eru hér á vefsíðu félagsins.
Félag íslenskra námsmanna í Stokkhólmi var síðan stofnað fimmtudaginn 7. desember 2006 við hátíðlega athöfn
í sendiherrabústað sendiherra Íslands í Svíþjóð, herra Guðmundar Árna Stefánssona.
Á fundinum voru drög að lögum félagsins samþykkt og kosið í stjórn. Stjórnin er skipuð þeim Einari Eiðssyni formanni,
Völu Rún Gísladóttur gjaldkera, Steinari Wang ritara og Dagnýju Benediktsdóttur upplýsingastjóra.
Einnig var Emil Sigursveinsson kosinn í embætti varamanns og Gunnar Benediktsson í embætti skoðunarmanns ársreikninga.
Formleg stofnun félagsins og opnun vefsíðunnar fór fram þann 7. desember og hér fyrir neðan gefur að líta fyrstu stjórn
félagsins ásamt sendiherra Íslands í Svíþjóð.
