Landsleikur: Ísland-Danmörk
Strákarnir okkar mæta erkifjendunum, Dönum, á laugardaginn í riðlakeppninni á EM mótinu í handbolta. Við ætlum að sjálfsögðu að horfa á leikinn, drekka bjór og jafnvel vera með almenn dólgslæti fari strákarnir sérstaklega illa (eða vel) að ráði sínu. Leikurinn byrjar klukkan 20:05 og verður sýndur á O'learys Östermalm (Storgatan 27, sjá http://kartor.eniro.se/m/MwMAS).
Bæta við athugasemd:
Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir við fréttirÝttu hér til að skrá þig inn